Rýming / brottflutningur / flótti Ef hættusvæði er yfirgefið t.d. heimili vegna ástands húss, snjóflóðahættu eða af annarri vá, eða stærra svæði rýmt að ákvörðun ríkisstjórnar verður öryggi best tryggt með eftirtöldum aðgerðum: Frágangur húss og verðmæta -
Takið með ykkur það sem brýnt er að hafa svo sem lyf og nauðsynjar ungbarna. -
Gangið tryggilega frá helstu verðmætum eða hafið þau meðferðis. -
Tryggið að matvæli liggi ekki undir skemmdum. -
Lokið gluggum og hurðum. -
Ef rýma þarf háhýsi varist að taka lyftu ef hætta er á að rafmagn fari af eða rýma þarf við bruna. Einnig geta lyftur skekkst í jarðskjálfta. -
Lokið fyrir gaskúta við eldavélar og grill. Metið hvort loka skuli fyrir inntak vatns (heitt og kalt) og rafmagns en hafið í huga að mikið frost getur valdið frostskemmdum. Sé ákvörðun ykkar að hafa rafmagn í húsinu: -
Munið að klæðast vel Nágrannahjálp Athugið hvort nágrannar ykkar þurfi aðstoð. Akið með fyllstu aðgát Haldið af stað í samræmi við gefin fyrirmæli og fylgið umferðarstraumnum. Akið með fyllstu aðgát. Gangandi flóttafólk Takið gangandi flóttafólk með ykkur, ef rými er í bílnum. Hlustið á útvarp  Farið í einu og öllu eftir þeim fyrirmælum sem kunna að vera gefin. Hlustið á útvarp, sjá senditíðnir útvarps. Fjöldahjálparstöð Haldið tafarlaust til næstu fjöldahjálparstöðvar og gefið ykkur fram þar. Ekkert flutningstæki Þeir sem ekki hafa eigið flutningstæki skulu koma sér að næstu fjöldahjálparstöð þar sem flutningar eru skipulagðir. Athugið: Ef lögreglustjóri gefur út fyrirmæli um rýmingu er íbúum skylt að rýma hús sín. Almannavarnir í héraði opna fjöldahjálparstöð og halda skráningu um dvalarstaði fólks þar til því er heimilt að fara til síns heima. Þeir sem ekki eiga kost á því að koma sér burt á eigin spýtur: Tilkynnið um þörf á aðstoð Tilkynnið að þörf sé á aðstoð við að komast út af svæðinu til næstu lögreglustöðvar eða fjöldahjálparstöðvar. Ekkert símasamband Sé símasambandslaust skal hengja áberandi hvíta veifu út um glugga sem snýr að aðalgötu eða er vel sýnileg. |