| Neyðarskipulag almannavarna skiptist í A og B hluta almenna neyðarskipulagsins og séráætlanir.
Almenna neyðarskipulagið Hægt er að bregðast við hvers kyns neyðarástandi með þessu skipulagi þar sem það byggir á stöðluðum áætlunum um almenn viðbrögð við vá. - A-hluti segir til um starfskipulag, stjórnun og verkaskiptingu þegar starfað er að almannavörnum.
- B-hluti sem eru almennir gátlistar um fyrstu viðbrögð þegar áföll verða.
Séráætlanir Séráætlanir ná til atburða og viðbragða við tiltekinni vá á tilteknum stað eða svæði. Þessar séráætlanir eru mun ítarlegri en almennu neyðaráætlanirnar. |