Viðbrögð   

Almennar ráðstafanir ef hættuástand skapast

  • Fylgið heimilisáætlun við hættuástand.
  • Tilkynningar um slys og beiðnir um aðstoð skulu berast Neyðarlínunni í síma 1-1-2.
  • Ef þörf er á aðstoð, en sími virkar ekki og önnur úrræði eru ekki fyrir hendi, hengið þá veifu út um glugga eða á áberandi stað utanhúss.  Þegar hamfarir verða er slík veifa merki um hjálparbeiðni.
  • Hlustið eftir tilkynningum og fréttum í fjölmiðlum.  FM og LW sendingar útvarps.

  • Viðvörunarboð almannavarna eru send ferðamönnum í farsíma  þegar hætta er yfirvofandi 
  • Ef fólk þarf að yfirgefa hús sín vegna hamfara gegna skólar jafnan hlutverki fjöldahjálparstöðva.
     
  • Í því tilfelli að heimili er yfirgefið án þess að fjöldahjáparstöð sé starfrækt skal gera lögreglu viðvart og gefa upp dvalarstað.
  • Ekki skal nota síma nema í neyð.  Hafa skal símtöl eins stutt og hægt er.  Allar nauðsynlegar tilkynningar birtast jafnóðum í fjölmiðlum. Setjið skilaboð inn á talhólf til vina og ættingja til að þeir fái fréttir af þér og fjölskyldu þinni.  
  • Sjáið til þess að aldraðir og fatlaðir í byggðalaginu eða hverfinu ykkar fái hjálp.
  • Sinnið almennri nágrannahjálp.

Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | S:444 2500 | Fax: 562 2665 |
Netfang:almannavarnir@rls.is