Hver er áhættan þar sem þú býrð 1. Mikilvægt er að þekkja hættur sem eru í þínu nánasta umhverfi og hver áhættan er. 2. Gerðið viðbragðsáætlun fyrir heimilið og fjölskylduna um það hvernig best er að bregðast við og hvað hver ætlar að gera. Það hjálpar þegar hamfarir verða þar sem heimilismenn eru ekki endilega allir saman. 3. Útbúið viðlaglagakassa Forvarnir er mikilvægur þáttur þess að takast á við vá Á heimilum og vinnustöðum ætti fólk að ræða sama um hugsanlegar hættur, ræða tryggingamál, skoða útgönguleiðir húsa, læra á öryggisbúnað og kanna staðsetningu hans. Nám í skyndihjálp getur bjargað mannslífum. Rauði kross Íslands veitir upplýsingar um námskeið fyrir almenning. Mikilvægt er að kunna að meðhöndla öryggisbúnað: Nauðsynlegur öryggisbúnaður á heimilum og vinnustöðum eru m.a.: - Slökkvitæki.
- Reykskynjarar.
- Brunastigi/kaðall - til undankomu af efri hæðum húsa.
- Verkfæri, svo sem hamar, sög, töng, rörtöng, skrúfjárn, skófla og kúbein.
Heppilegt er að koma eftirtöldum búnaði fyrir í "viðlagakassa" sem allir vita hvar er geymdur: - Sjúkrakassi (gott er að hafa skrá yfir lyf heimilismanna)
- Vasaljós
- Útvarp með rafhlöðum
- Bæklingur um skyndihjálp
- Borðsími, sem hægt er að nota ef stafrænn eða þráðlaus sími verður óvirkur
- Farsími með auka rafhlöðum og hleðslutæki
- Auka bíllyklar og húslyklar
- Listi yfir mikilvæg símanúmer (nákominna, þjónustuaðila o.fl.).
- Viðbragðsáætlun fjölskyldunnar / vinnustaðarins.
Ef nauðsynlegt er að yfirgefa heimilið vegna neyðarástands getur útilegubúnaður komið að góðum notum.
Fjarskipti Ýmsar fjarskiptaleiðir geta verið notaðar í kjölfar áfalla. TETRA fjarskiptakefið hefur nú víðtæka útbreiðslu um landið, ennfremur VHF-fjarskiptakerfið, stafrænir og þráðlausir símar, netsímar og borðsímar, boðtæki, tölvur/netið og fleira. Auk þess hafa radío amatörar oft haft hlutverk í kjölfar áfalla þar sem þeir geta bæði sent töluð skilaboð og notað morsemerkjakerfið þegar erfitt er að ná sambandi. 112- Iceland er ókeypis snjallsímaforrit eða "app" fyrir ferðamenn sem eru með i-phone eða android síma sem gerir þeim kleift að kalla eftir aðstoð í neyð auk þess er hægt að skilja eftir "slóð" með GPS staðsetningu. Nágrannahjálp Bið getur orðið á að hjálp berist og einnig getur fólk þurft aðstoð við að kalla á hjálp. Því er mikilvægt að allir kanni aðstæður nágranna sinna í kjölfar áfalla því mest getur munað um hjálpina sem er næst þegar áfall dynur yfir. Eldri borgarar og fatlaðir Biðjið einhvern nákominn eða nágranna að hafa ykkur í huga ef vá er fyrir dyrum. Börn Þegar rætt er um öryggi og neyðaráætlanir á heimilinu þurfa börnin að vera með svo þau geti lært hvernig þau eigi að bregðast við, sérstaklega ef þau verða viðskila við foreldra eða aðra nákomna við yfirvofandi vá. Kennið börnunum hvernig hægt er að bregðast við vá, hvernig nauðsynlegt er að vera rólegur, að læra að krjúpa - skýla - halda við jarðskjálfta og nema staðar, fara á hnén og skríða í eldsvoða.
Kynnið ykkur hvernig skólar og leikskólar bregðast við vá. Kennið börnunum ykkar að hringja í 1-1-2 og leggið áherslu á hvenær hringt er í slíkt neyðarnúmer. Sýnið börnunum með leik hvernig þau geta brugðist við ef foreldrar verða snögglega veik eða slasast.
Búið til heimilisáætlun. Með því undirbýr heimilisfólk sig í að bregðast við þegar náttúruhamfarir eða önnur vá hefur áhrif á heimili, vinnustaði, skóla eða aðra dvalarstaði heimilisfólks. Almennar ráðstafanir ef hættuástand skapast |