Snjóflóð Að verða fyrir snjóflóði Sá sem lendir í snjóflóði skal: Reyna að synda Reyna eftir fremsta megni að halda sér upp úr flóðinu með því að taka sundtökin. Öndunarvegur Halda fyrir vit sín og reyna að koma í veg fyrir að þau fyllist af snjó ef borist er stjórnlaust með snjóflóðinu. Snjóflóðið stöðvast Hreyfa sig eftir fremsta megni þegar snjóflóðið tekur að stöðvast til að búa til rými til öndunar og hreyfingar. Haltu ró þinni Haltu ró þinni. Ekki reyna að kalla á hjálp, fyrr en heyrist vel í leitamönnum. Mundu að þú heyrir betur í leitarmönnum en þeir í þér. Trúin um að vera bjargað eykur lífslíkur til muna.
Snjóflóð Að sjá einhvern lenda í snjóflóði Ef þú sérð einhvern lenda í snjóflóði, skaltu: Staðsetja  Miðaðu út þann stað, þar sem þú sást viðkomandi hverfa í snjóflóðið. Notaðu kennileiti til að miða út staðinn. Tryggðu öryggi þitt Gættu vel að öryggi þínu, annað snjóflóð gæti fallið í farveg hins eða umhverfis það. Tilkynning Tilkynntu um slysið tafarlaust til 112. Skyndikönnun Ef engin hætta er talin á öðru snjóflóði skaltu tafarlaust hefja leit í yfirborði flóðsins, en þar má oft finna vísbendingar um hvar hinn grafni liggur. Hjálpartæki Notaðu hjálpartæki, ef þau eru til staðar, svo sem snjóflóðarstangir, rafmagnsrör, hrífusköft, skíðastafir eða þess háttar. Stingið þeim lóðrétt niður til að kanna fyrirstöðu. Ef hundur er til staðar skaltu láta hann hjálpa þér við leitina. Fyrstu leitarstaðir Fyrst í stað skaltu einskorða leitina við þá staði þar sem hraða- eða stefnubreyting hefur orðið á flóðinu, svo sem við kletta, beygjur, vegkanta o.þ.h. Einnig skal leita neðst í tungu flóðsins og upp eftir skriðu. Að verða fyrir snjóflóði |