|
Forvarnir fyrir snjóflóð
[Yfirlýst hættusvæði] [Ferðir í fjalllendi - Mat á hættu] [Ferðir í fjalllendi - Leiðarval]
Yfirlýst hættusvæði
Viðbúnaður og rýmingaráætlanir: Alls hafa verið gerðar viðbragðs- og rýmingaráætlanir fyrir 16 þéttbýlisstaði á landinu. Reitarskipt rýmingarkort í helstu bæjarfélögum þar sem skilgreind hætta hefur verið metin vegna snjóflóða; Ólafsvík, Patreksfjörður, Tálknafjörður, Bíldudalur, Þingeyri Flateyri, Suðureyri, Bolungarvík, Ísafjörður, Súðavík, Siglufjörður, Ólafsfjörður, Seyðisfjörður, Neskaupstaður, Eskifjörður, Fáskrúðsfjörður. Þá hefur einnig verið ger hættumat fyrir Drangsnes, Akureyri, Kirkjubæjarklaustur og Vík í Mýrdal.
Veðurstofa Íslands og snjóflóðaathugunarmenn fylgjast með snjóflóðahættu í byggð. Ef snjóflóðahætta skapast skal fólk yfirgefa hættusvæðið í samræmi við gefin fyrirmæli. Sjá rýming / brottflutningur
Ef það er ekki mögulegt verður öryggi best tryggt með eftirtöldum aðgerðum:
Forðist að vera utandyra Gætið þess að vera sem minnst utandyra og alls ekki í fjalllendi. Dvalarstaður öryggisráðstafanir Dveljið þeim megin í húsinu sem snýr undan fjallshlíðinni. Gluggum og millihurðum skal tryggilega lokað. Setjið hlera fyrir þá glugga sem að fjallinu snúa.
Kjallarar Dveljið ekki í kjöllurum húsa nema þeir séu alveg niðurgrafnir og með steyptri loftplötu.
Stöðutilkynningar Þeir sem búa eða dvelja afskekkt komi á síma- eða talstöðvasambandi við aðila utan hættusvæðis og láti heyra frá sér reglulega.
Ef lögreglustjóri gefur út fyrirmæli um rýmingu er íbúum skylt að rýma hús sín. Almannavarnir í héraði opna fjöldahjálparstöð og halda skráningu um dvalarstaði fólks þar til því er heimilt að fara til síns heima.
Ferðir í fjalllendi - Mat á hættu. Flest hættuleg snjóflóð falla í hríðarveðri, þegar skafrenningur er viðvarandi og snjókoma er meiri en 20 cm. á sólarhring. ![Veðurstofa Íslands [www.vedur.is]](/upload/images/large/135.jpg)
Veðurspá Leggið ekki í fjallaferðir þegar spáð er stórhríð. Fylgist vel með veðurspá og viðvörunum.
Hættutímabil Snjóflóðahætta helst venjulega í 3 daga eftir að hríð slotar en enn lengur sé kalt í veðri.
Snjóflóðahætta Hætta er á ferðum þegar brestir heyrast í snjóþekju, sprungur sjást og snjóboltar eða spýjur falla. Hugið að styrk snjóþekjunnar. Þótt yfirborðið virðist traust geta veikburða lög leynst undir því. Hlýindi, sólbráð eða regn á snjó geta valdið snjóflóðahættu. Varist svæði þar sem snjór er svo votur að hann skvettist undan skíðum.
Ferðir í fjalllendi - Leiðarval
Forðist brattar brekkur Forðist allar brekkur og gil með yfir 30° halla (bröttustu skíðabrekkur).
Varist að skera fjallshlíðar Þegar ferðast er í fjalllendi þar sem hætta er á snjóflóði, á vélknúnum ökutækjum, snjóbrettum, skíðum og þess háttar, skal varast að skera þvert á fjallshlíðar og taka óþarfa beygjur þegar farið er niður varasamar hlíðar því það getur komið snjóflóði af stað.
Öruggustu leiðirnar Öruggustu gönguleiðirnar eru á hryggjum og áveðurs í hlíðum. Þræðið svæði þar sem snjór er grynnstur og þið sjáið nibbur standa upp úr. Ferðist eftir dalbotni frekar en í brekkukverkinni. ![Snjóflóðadeild Veðurstofu Íslands [www.vedur.is]](/upload/images/large/135.jpg)
Að lenda í snjóflóði eða að sjá einhvern lenda í snjóflóði - Viðbrögð
|